Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda og umhverfisvæna lausn

21. maí 2026
Á myndinni eru þeir Pétur Blöndal, eigandi Iðnver og Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxey.


Iðnver ehf. er stolt af því að tilkynna um gerð tímamótasamnings við landeldisfyrirtækið Laxey sem mun kaupa ECA-rafal af Iðnver. Um er að ræða byltingarkennda lausn fyrir sótthreinsun og þrif hjá fyrirtækinu í Vestmannaeyjum. Samningurinn er mikilvægur áfangi í samstarfi fyrirtækjanna sem hafa það að markmiði að auka nýsköpun og bæta umhverfisvernd í íslenskum sjávarútvegs- og matvælaiðnaði.


ECA-vatn

ECA-vatn (Electrolyzed Water) er umhverfisvæn tækni þar sem sjór og rafmagn eru nýtt til að framleiða öfluga, náttúrulega hreinsilausn með rafgreiningu. Tæknin býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika og hentar sérstaklega vel þar sem gerðar eru miklar kröfur um hreinlæti, öryggi og gæða. 


Notkun á ECA-vatni er mjög áhrifarík aðferð til að eyða bakteríum, veirum og öðrum örverum, án þess að nota til þess skaðleg eða hættuleg efni. Þessi lausn hentar því einkar vel í sjávarútvegi, matvælaiðnaði, heilbrigðisþjónustu og ýmsum iðnaðarferlum, en einnig í sundlaugum og annars staðar þar sem mikilvægt er að tryggja hreint og öruggt umhverfi. 


ECA- tæknin styður auk þess við sjálfbærni og umhverfisvernd með því að takmarka þörf fyrir hefðbundin skaðleg hreinsiefni og minni notkun þeirra dregur úr mengun umhverfisins. Jafnframt getur þessi nýja tækni stuðlað að bættum vatnsgæðum við ýmsa framleiðsluferla þar sem hreinleiki skiptir sköpum.


Laxey og sjálfbærni

Landeldisfyrirtækið Laxey er mjög áhugasamt um sjálfbærni og hefur skuldbundið sig til að nota lausnir sem stuðla að verndun umhverfisins. Með því að fjárfesta í ECA-rafalnum frá Iðnveri, staðfestir Laxey að þau eru á réttri leið í átt að sjálfbærri þróun og eru opin fyrir nýrri tækni sem getur haft jákvæð áhrif á umhverfið.


Framhaldið

Samstarf Iðnvers, Laxeyjar felur í sér að deila þekkingu og reynslu á þessu nýstárlega sviði, sem mun stuðla að enn frekari nýsköpun í íslenskum matvælaiðnaði. Með því að sameina krafta sína vonast fyrirtækin til að stuðla að aukinni notkun umhverfisvænna lausna og skapa þannig verðmæti fyrir fyrirtækin og samfélagið með betri grænni framtíð.


Recent Posts

Karlmaður og kona taka í hendur við skrifborð með skjölum, sitjandi fyrir framan skiplíkan á tréhillu.
18. mars 2026
Ferskar kjötvörur og Iðnver hafa skrifað undir samning um kaup á búnaði í starfsmannaaðstöðu – hluta af áframhaldandi samstarfi um gæðabúnað fyrir matvælaiðnað.
Tveir einstaklingar taka í hendur við borð með skjöl og skipslíkan á bak við sig í skrifstofuumhverfi.
13. mars 2026
Iðnver kaupir EH13 ehf. og styrkir þannig þjónustu sína við sjávarútveg og matvælaiðnað á Íslandi.
Eimur og Iðnver skrifa undir samning um
22. desember 2025
Eimur og Iðnver skrifa undir samning um leigu á hreinsibúnaði fyrir fráveitu frá sláturhúsi – framtíðarlausn í umhverfisvænni meðhöndlun á fráveitu.
Tveir menn á sýningarbás að skoða bláa legu.
11. september 2025
Iðnver hefur tekið við umboði fyrir NG legur á Íslandi – leiðandi framleiðandi í legum og vélahlutum fyrir sjávarútveg og iðnfyrirtæki.
Tveir menn taka í höndina á sér fyrir framan bláan bakgrunn með texta, hugsanlega á viðskiptasýningu eða ráðstefnu.
2. júlí 2024
Iðnver og Huber Technology undirrita samning – Iðnver verður umboðsaðili Huber á Íslandi og mun bjóða upp á búnað þeirra fyrir skólp og iðnaðarfráveitu.
Verkamaður í bláum kyrtil stjórnar vefnaðarvél í verksmiðju fullri af röðum af hvítum þráðspólum.
2. maí 2024
Iðnver setti upp HDF hreinsibúnað frá Huber Technology hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum til að hreinsa frávatn frá uppsjávar- og bolfiskvinnslu.
Stór iðnaðarvél vafin inn í plast á bretti, affermd af vörubíl með brettijakki.
16. maí 2023
Arctic Fish fær afhent allan búnað fyrir starfsmannaaðstöðu nýja laxasláturhússins í Bolungarvík – í nánu samstarfi við Iðnver.
Afhending á trékössum úr vörubíl; maður við ramp; skýjað himinn.
17. apríl 2023
Arctic Fish fær afhent þvottakerfi frá System Cleaners fyrir nýja laxasláturhúsið í Bolungarvík – uppsett af sérfræðingum Iðnver og System Cleaners.