Ferskar kjötvörur og Iðnver skrifa undir samning um kaup á búnaði í starfsmannaaðstöðu

Iðnver var að undirrita samning við Ferskar kjötvörur um kaup á búnaði í starfsmannaaðstöðu í nýja starfsstöð félagsins. Um er að ræða alls kyns búnað frá Elpress sem stuðlar að ítrasta hreinlæti í kringum vinnsluna, aðgangsstýrlu, sótthreinsivélar og handlaugar svo dæmi séu nefnd. Við erum spennt yfir verkefninu og hlökkum til samstarfsins.
Á myndinni er Pétur Blöndal eigandi Iðnvers og Jóna Sigríður Halldórsdóttir gæðastjóri hjá Ferskum kjötvörum.
Recent Posts

13. mars 2026
Iðnver ehf. hefur gengið frá kaupum á fyrirtækinu EH13 ehf. sem er meðal annars umboðsaðili fyrir Radical Waters á Íslandi. Steingrímur Matthíasson, seljandi EH13, mun starfa áfram með Iðnveri og mun það einfalda þessi vistaskipti hans fyrrum umbjóðenda, að því er segir í fréttatilkynningu. Radical Waters framleiðir ECA-rafala sem er búnaður til að framleiða sótthreinsandi efnið Anolyte úr vatni, salti og rafmagni og einfaldar fyrirtækjum sótthreinsun og þrif, eykur öryggi starfsfólks og dregur úr umhverfisspori þeirra. „Við erum hæstánægð með að hafa gengið frá þessum kaupum á EH13 og hlökkum til að kynna nýja vöru og aukna þjónustu fyrir okkar viðskiptavinum. Jafnframt er okkur mikill fengur í því að fá njóta starfskrafta Steingríms,“ segir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri og aðaleigandi Iðnvers. Iðnver sérhæfir sig í ýmis konar þvottakerfum og vélbúnaði til hreinsunar á hvers kyns fráveituvatni. Fyrirtækið þjónustar fjölda fyrirtækja í sjávarútvegi, matvælaiðnaði og heilbrigðisgeiranum.





