Iðnver kaupir EH13 ehf.

13. mars 2026

Iðnver ehf. hefur gengið frá kaupum á fyrirtækinu EH13 ehf. sem er meðal annars umboðsaðili fyrir Radical Waters á Íslandi.


Steingrímur Matthíasson, seljandi EH13, mun starfa áfram með Iðnveri og mun það einfalda þessi vistaskipti hans fyrrum umbjóðenda, að því er segir í fréttatilkynningu.


Radical Waters framleiðir ECA-rafala sem er búnaður til að framleiða sótthreinsandi efnið Anolyte úr vatni, salti og rafmagni og einfaldar fyrirtækjum sótthreinsun og þrif, eykur öryggi starfsfólks og dregur úr umhverfisspori þeirra.


„Við erum hæstánægð með að hafa gengið frá þessum kaupum á EH13 og hlökkum til að kynna nýja vöru og aukna þjónustu fyrir okkar viðskiptavinum. Jafnframt er okkur mikill fengur í því að fá njóta starfskrafta Steingríms,“ segir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri og aðaleigandi Iðnvers.


Iðnver sérhæfir sig í ýmis konar þvottakerfum og vélbúnaði til hreinsunar á hvers kyns fráveituvatni. Fyrirtækið þjónustar fjölda fyrirtækja í sjávarútvegi, matvælaiðnaði og heilbrigðisgeiranum.

Recent Posts

18. mars 2026
Iðnver var að undirrita samning við Ferskar kjötvörur um kaup á búnaði í starfsmannaaðstöðu í nýja starfsstöð félagsins. Um er að ræða alls kyns búnað frá Elpress sem stuðlar að ítrasta hreinlæti í kringum vinnsluna, aðgangsstýrlu, sótthreinsivélar og handlaugar svo dæmi séu nefnd. Við erum spennt yfir verkefninu og hlökkum til samstarfsins.  Á myndinni er Pétur Blöndal eigandi Iðnvers og Jóna Sigríður Halldórsdóttir gæðastjóri hjá Ferskum kjötvörum.
Eimur og Iðnver skrifa undir samning um
22. desember 2025
Eimur og Iðnver skrifa undir samning um leigu á hreinsibúnaði fyrir fráveitu frá sláturhúsi – framtíðarlausn í umhverfisvænni meðhöndlun á fráveitu.
Tveir menn taka í höndina á sér fyrir framan bláan bakgrunn með texta, hugsanlega á viðskiptasýningu eða ráðstefnu.
2. júlí 2024
Iðnver og Huber Technology undirrita samning – Iðnver verður umboðsaðili Huber á Íslandi og mun bjóða upp á búnað þeirra fyrir skólp og iðnaðarfráveitu.
Verkamaður í bláum kyrtil stjórnar vefnaðarvél í verksmiðju fullri af röðum af hvítum þráðspólum.
2. maí 2024
Iðnver setti upp HDF hreinsibúnað frá Huber Technology hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum til að hreinsa frávatn frá uppsjávar- og bolfiskvinnslu.
Stór iðnaðarvél vafin inn í plast á bretti, affermd af vörubíl með brettijakki.
16. maí 2023
Arctic Fish fær afhent allan búnað fyrir starfsmannaaðstöðu nýja laxasláturhússins í Bolungarvík – í nánu samstarfi við Iðnver.
Afhending á trékössum úr vörubíl; maður við ramp; skýjað himinn.
17. apríl 2023
Arctic Fish fær afhent þvottakerfi frá System Cleaners fyrir nýja laxasláturhúsið í Bolungarvík – uppsett af sérfræðingum Iðnver og System Cleaners.