Hvernig tryggjum við hreint neysluvatn?
Úr vatni og salti í öruggara neysluvatn
Nýleg tilvik þar sem E. coli hefur greinst í neysluvatni hér á landi minna á mikilvægi vatnsverndar, eftirlits og viðeigandi sótthreinsunar. Þegar slík mengun greinist þarf að finna orsökina, gera úrbætur og tryggja að vatnið sé neysluhæft á ný.
Í sænska bænum Riddarhyttan var Envorolyte-búnaður settur upp til að sótthreinsa neysluvatn fyrir um 1.000 íbúa. Verefnið sýnir hvernig tæknin getur orðið hluti af deglegum rekstri vatnsveitu.
Fækkun örvera og hreinni lagnir
Vatnsveitan í Riddarhyttan, í sveitarfélaginu Skinnskatteberg, afgreiðir um 700 m³ af vatni á dag. Þar var sett upp Envirolyte ELA-2000ANW-kerfi, en samkvæmt verkefnalýsingu framleiðandans hafði engin sótthreinsitækni áður verið notuð hjá veitunni.
Eftir uppsetningu kerfisins fækkaði örverum í vatninu og örverulag innan á lögnum hreinsaðist. Slíkt lag getur myndast þegar örverur festa sig við innra yfirborð lagna og fjölga sér þar.
Vatn, salt og rafmagn
Envirolyte-kerfið framleiðir sótthreinsilausn, svokallað ECA-vatn, á staðnum úr vatni, salti og rafmagni. Með rafgreiningu saltlausnar verður til lausn sem inniheldur virkan klór, meðal annars hypoklórsýru (HOCl). Henni er síðan skammtað sjálfvirkt inn á vatnsveituna.
Kerfið er sjálfvirkt og krefst takmarkaðra daglegra afskipta rekstraraðila. Framleiðsla á staðnum dregur jafnframt úr þörf fyrir flutning, meðhöndlun og geymslu aðkeyptra sótthreinsiefna.
Lausn aðlöguð að hverri vatnsveitu
ECA-tækni er einn þeirra kosta sem hægt er að nýta þegar þörf er á sótthreinsun vatns. Við útfærslu þarf að taka mið af vatnsgæðum, rennsli og nauðsynlegum snertitíma. Hægt er að tengja skömmtun við rennslismælingar og mælingar á fríum klór. Árangur er síðan staðfestur með sýnatöku og reglulegu eftirliti.
Envirolyte-búnaður er fáanlegur í mismunandi stærðum og getur því hentað bæði litlum og stórum vatnsveitum sem og fyrirtækjum sem þurfa að sótthreinsa vinnsluvatn.
Iðnver er umboðsaðili Envirolyte á Íslandi. Við aðstoðum við að meta þörfina og velja búnað og útfærslu sem hentar aðstæðum á hverjum stað.
Lesa verkefnalýsingu Envirolyte um vatnsveituna í Riddarhyttan (PDF, á ensku)

Recent Posts









