Iðnver eflir samstarfsnet sitt
Iðnver hefur undirritað samstarfssamninga við XVent, Microbe Biosolutions (MBS) og BioAqua. Með samstarfinu styrkjum við framboð okkar á lausnum fyrir fiskeldi, iðnað og frárennslishreinsun.
XVent sérhæfir sig í loftræstingu og afloftun fyrir landeldi. Styrkur fyrirtækisins liggur í lausnum sem eru hannaðar fyrir krefjandi aðstæður fiskeldis, með áherslu á orkunýtni, endingu og hagkvæman rekstur. Tækjabúnaður þeirra tekur 70% minna pláss en sambærilegur búnaður.
Microbe Biosolutions (MBS) þróar líffræðilegar lausnir sem nýta náttúrulegar örverur til að brjóta niður lífræn efni og draga úr lyktarvandamálum. Lausnir fyrirtækisins nýtast meðal annars í fráveitum, frárennslishreinsun og fiskeldi.
BioAqua sérhæfir sig í vatns- og frárennslishreinsun fyrir meðal annars matvælaiðnað og fiskeldi. Samstarf okkar beinist sérstaklega að lífrænni hreinsun frárennslis, þar sem örverur eru nýttar til að brjóta niður lífræn efni. Fyrirtækið býr jafnframt yfir víðtækri þekkingu á meðhöndlun frárennslis, seyruafvötnun og endurnýtingu vatns og verðmætra efna.
Við hjá Iðnver veljum samstarfsaðila af kostgæfni og gerum miklar kröfur til þekkingar, gæða og þjónustu. Þessir nýju samningar bætast við öflugt samstarfsnet okkar og gera okkur kleift að bjóða fjölbreyttari lausnir, sniðnar að þörfum hvers verkefnis.
Við hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar og spennandi verkefna með viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum!
Recent Posts











