
ECA-vatn er umhverfisvæn sótthreinsilausn sem er framleidd á staðnum úr salti, vatni og rafmagni. Lausnin inniheldur hýpóklórsýru (HOCl), sem eyðir bakteríum, veirum og öðrum örverum.
ECA-vatn er meðal annars notað til að hreinsa vatn, sótthreinsa yfirborð og búnað og draga úr óhreinindum í vatns- og fráveitukerfum. Þar sem lausnin er framleidd eftir þörfum minnkar þörfin fyrir flutning og geymslu á sterkum hreinsiefnum.
Kerfið getur einnig framleitt basíska hreinsilausn sem hentar til þrifa og fituhreinsunar. ECA-kerfi eru einföld í notkun, umhverfisvænni en mörg hefðbundin hreinsiefni og hægt er að laga þau að mismunandi þörfum.
Iðnver aðstoðar við val, uppsetningu og stillingu ECA-kerfa fyrir fyrirtæki, vatnshreinsistöðvar og annan iðnað.
Senda fyrirspurn
Skilaboð móttekin.
Takk fyrir að hafa samband. Við svörum þér fljótlega.
Please try again later.