Starfsmannaaðstaða
Ferskar kjötvörur

Ferskar kjötvörur eru rótgróið fyrirtæki í matvælaiðnaði sem hefur það að leiðarljósi að bjóða einungis upp á vörur sem standast ströngustu kröfur um ferskleika og gæði. Fyrirtækið sér verslunum Haga og ýmsum stórnotendum fyrir kjötvörum og á jafnframt fjölda vörumerkja, meðal annars Íslandsnaut, Íslandslamb og Heima. Starfsemin er þess eðlis að gott hreinlæti er gríðarlega mikilvægt og ef eitthvað fer úrskeiðis í þeim efnum getur það reynst dýrkeypt, til dæmis ef innkalla þarf vörur.
Þegar ákveðið var að flytja starfsemi Ferskra kjötvara í nýtt húsnæði að Álfabakka 2a leituðu forsvarsmenn fyrirtækisins til Iðnvers með það verkefni að koma upp sérhæfðum hreinlætisbúnaði af nýjustu gerð. Að lokinni þarfagreiningu útfærði Iðnver heildstæða lausn sem fellur vel að daglegum störfum og flæði starfsfólks um húsnæðið. Lausnin byggist á fullkomnum búnaði frá hollenska framleiðandanum Elpress sem auðveldar starfsfólki að viðhalda hreinlæti bæði við innganginn og í vinnslunni sjálfri.
Þar á meðal er sótthreinsihlið sem starfsfólk fer í gegnum áður en það fer inn í vinnslusalinn, auk skóþvottavéla, áhaldavaska og handlauga í öllum rýmum. Allur undirbúningur og uppsetning búnaðarins gekk að óskum. Við þökkum Ferskum kjötvörum fyrir traustið og ánægjulegt samstarf og óskum þeim til hamingju með þessa nýju og glæsilegu hreinlætisaðstöðu!
Fráveituhreinsun
Gámahreinsistöð
Iðnver hefur selt gámahreinsistöðvar víðsvegar um landið. Um er að ræða fullbúna lausn sem getur annað allt frá litlum verksmiðjum yfir í heilu bæjarfélögin. Endilega hafðu samband við okkar sölumenn og við hjálpum þér að sníða lausn eftir þínum þörfum.
Hreinsistöð fyrir vinnslustöðina í Vestmannaeyjum
Iðnver er stolt af því að hafa í samstarfi við Huber Technology aðstoðað Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum (VSV) við að setja upp HDF hreinsibúnað.
Sólheimar festa kaup á lífrænni hreinsistöð
HiPAF hreinsistöð til notkunar hjá Sólheimum.
Lífræn hreinsistöð í Höfnum
Iðnver óskar fráveitu Reykjanesbæjar til hamingju með lífrænu hreinsistöðina sem verið er að setja niður í Höfnum. Stöðin mun hreinsa stóran hluta skólps í sveitarfélaginu.



